Um Okkur
Starfsemin
Veislumiðstöðin var stofnuð árið 1975 af matreiðslumeistaranum Carli Jónasi. Fyrirtækið var þá til húsa við Lindargötu í Reykjavík og var þekkt sem hágæða veisluþjónusta.
Í dag er Veislumiðstöðin staðsett í hjarta fyrirtækjamenningar í Borgartúni 6. Þar er rekinn mjög öflug veisluþjónusta, sem þjónar einstaklingum jafnt sem fyrirtækjum. Hópur ánægðra viðkiptavina fer ört stækkandi og við leggjum metnað okkar í að veita sem bestu mögulegu þjónustu við þennan hóp.Matreiðslumeistarinn Carl J. Johansen er hjartað í starfseminni en hann er mörgum að góðu kunnur fyrir snilldartakta þegar útbúa skal góða veislu. Enda hefur hann nálægt 40 ára reynslu sem matreiðslumaður og hefur því það yfirbragð sem reynslan ein getur gefið, hvort sem er að stjórna stórum veislum eða veita persónulega þjónustu í heimahúsi. Forsetar, þjóðhöfðingjar, ráðherrar og annað gott fólk hafa fengið að njóta matreiðslukunnáttu Carls, hér heima sem og erlendis. Matreiðsla Carls kristallast í skilningi á frábæru bragði, fersku hráefni og töfrandi framsetningu.